Niðurstöður

Aðferðarfræði

Til að gera nálgunina í verkefninu COMP+ eins notendavænt og mögulegt er fyrir þjálfara, munum við útbúa aðferðafræði fyrir kennara í starfsmenntun og framhaldsnámi um nýtingu VR-herma og leikbundinnar nálgunar (gamification) í menntun. Aðferðarfræðin er uppbyggð á rannsóknar- og reynslugögnum og beinist að þróun og framkvæmd þjálfunarverkefna sem samþætta þessar nýju tækni til að skila áhugaverðri, gagnvirkri og árangursríkri kennslu. Skjalið mun því einnig styðja nánari faglega þróun þjálfarana sjálfra og þar með nemendum þeirra. Enn fremur mun aðferðafræðin útskýra ítarlega hvernig efni COMP+ má nýta í starfsmenntun, bjóða upp á bakgrunnsþekkingu og virka sem leiðarvísir fyrir sértæka þjálfun með COMP+. Því tryggir hún einnig flutningshæfni niðurstaðna verkefnisins og sjálfbærni þess.

Smelltu hér til að hlaða niður COMP+ aðferðafræði sem PDF

Workshops

Vinnustofur COMP+ fylgja samræmdri uppbyggingu og námsaðferð fyrir öll fimm umræðuefnin:

Fjölbreytni og þáttaka
– Umhverfisvitund
– Streitustjórnun
– Siðferðislegur kjarkur
– Átakastjórnunar hæfni

Hver vinnustofa inniheldur kynningarmyndband, fræðilegan bakgrunn, hagnýtar æfingar, og bæði VR-lausn og tölvuleikjatengda lausn til stuðnings ígrundaðs náms. Þó svo að VR-lausnin bjóði upp á raunsætt þjálfunarumhverfi, þá veitir tölvuleikjaútgáfan aðgengilegan og áhugaverðan inngang — sérstaklega gagnlegt fyrir þá nemendur sem hafa takmarkaða reynslu af notkun VR-hermi.

Vinnustofurnar eru hannaðar sem blandað námsform og má yfirleitt ljúka þeim á um það bil tveimur klukkustundum, auk þess tíma fyrir einstaklingsbundið sjálfsnám.

Til að tryggja sem mestan sveigjanleika í mismunandi þjálfunarsamhengjum er efnið sett saman í einingar. Þetta gerir þjálfurum kleift að velja það sem er mest við hæfi og aðlaga umfang og efni að sérstökum þörfum.

Fyrstu fjórar vinnustofurnar voru upphaflega þróaðar sem hluti af verkefninu COMP+. Enn með eftirfylgniverkefninu COMP+ D/I voru þessar vinnustofur endurskoðaðar til hlítar svo innleiða megi sjónarmið fjölbreytni og þátttöku (diversity & inclusion) í allt efnið. Jafnframt var þróuð alveg ný vinnustofa sér­staklega tileinkuð fjölbreytni og þátttöku til að fjalla um þetta efni á dýpri hátt.

Smelltu hér til að fara á stafræna námskeiðið þar sem öll gögn eru aðgengileg.

VR upplifun

VR-upplifun COMP+ inniheldur fimm grípandi birtingamyndir / sviðsmyndir (scenarios), hvert og eitt miðar að einu lykilumræðuefni: umhverfisvitund, streitustjórnun, átakasstjórnun, siðferðislegum kjarki og fjölbreytni & þátttöku.

Þessar VR-upplifanir gera nemendum kleift að beita þekkingu sinni í raunsæjum, gagnvirkum aðstæðum og endurskoða viðbrögð sín í öruggu, VR-hermdu umhverfi.

Allar birtingamyndir / sviðsmyndir eru aðgengilegar í Meta Quest í gegnum Meta Store.

Í gegnum sviðsmyndirnar geta notendur að fetað sig í gegnum flókið ástand í umhverfi almenningssamgangna og beitt þekkingu sinni úr vinnustofunum. Þú getur fundið kennslumyndbönd fyrir VR-sviðsmyndirnar á YouTube-rásinni okkar.

Leik sviðsmyndir

Með því að bæta við tölvuleik verður hægt að lækka tækni þröskuldinn bæði fyrir þjálfara og þátttakendur, með það í huga að sýndarveruleiki (VR) er enn tiltölulega ný tækni og er ekki mikið notaður, sérstaklega í menntunarsamhengi. Við erum að búa til tölvuleikinn COMP+, sem bæði sjálfstæðir nemendur og þátttakendur vinnustofa geta spilað. Leikurinn verður hannaður til að hjálpa leikmönnum að þróa hæfni umfram sérhæfða fagþekkingu í samhengi almanningssamgangna. Hann mun samanstanda af nokkrum stigum, þar sem hvert stig einbeitir sér að mismunandi hæfnissviði.

Vefleikurinn hefur verið prófaður í eftirfarandi vöfrum og virkar þar fullkomlega: Chrome, Edge, Brave (og öllum öðrum vöfrum sem byggja á Google Chrome).
Endanleg útgáfa af leiknum verður fáanleg vorið 2026.

Stuðningur fyrir þjálfara

Til að tryggja að þjálfarar séu vel undirbúnir til að koma á framfæri COMPETENCE+ námsupplifuninni (Competence+ learning experience), hafa verið þróuð fjölbreytt stuðningsgögn sem hluti af COMP+ verkefninu.

Handbók þjálfara

Handbækur fyrir þjálfara veita nákvæmar leiðbeiningar um hvernig skipuleggja eigi lotur, leiða umræður og aðlaga efnið að mismunandi námsumhverfum.

VR leiðarvísir

Hvernig má að nota Competence+ VR reynsluna: Hagnýt handbók sem veitir skref-fyrir-skref leiðbeiningar um hvernig setja á upp og nota VR-sviðsmyndir í þjálfunarumhverfi, ásamt ráðleggingum um hvernig hægt er að samþætta þær á árangursríkan hátt inn í vinnustofur.

VR kennslumyndbönd

Stuttar, auðskiljanlegar myndbands-leiðbeiningar sem kynna VR-sviðsmyndirnar og útskýra hvernig hægt er að nota þær.

Þessi hjálpargögn eru hönnuð til að gera innleiðinguna eins hnökralausa og hægt er og veita þjálfurum sjálfstraust til að vinna með efnið og stafrænu verkfærin — óháð fyrri reynslu þeirra af VR eða leikjamiðaðri þjálfun.

Hafðu samband

Við gleðjumst yfir því að heyra frá þér!
Ef þú vilt hafa samband við teymið fyrir Competence+, vinsamlegast notaðu þessa netfangslínu.